Vesturhlíð 7 · Reykjavík

Róin er úti.
Krafturinn er inni.

Skrifborð og skrifstofur í gömlu kapellunni í Fossvogi. Opnað verður í nóvember 2026.

Bóka skoðun Frá 65.000 kr. + vsk. á borð
Kapellan í Vesturhlíð 7, með Perluna á sjóndeildarhringnum
35 bílastæðiEldhús og kokkur Skógurinn og tjörnin að bakiOpnar í nóvember 2026

Rýmin

Rýmin í húsinu

Opið vinnurými
Opið vinnurými

44 föst borð

Salarhæð 3,4–5,4 m

Frá 65.000 kr. + vsk. á borð
Einkaskrifstofa
Einkaskrifstofur

6–8 manna

Læstar skrifstofur með eigin hurð

Frá 85.000 kr. + vsk. á mann
Skálinn — áttstrenda kapellan
Kaffihús

Kaffihús og blómaverslun í Kapellunni

Blómstra rekur kaffihús og verslun í skálanum — gott kaffi og innblástur úr blómaríkinu.

Opið öllum í húsinu

Teikningin

Skoðaðu húsið

Á milli lífs
og dauða

Kirkjugarðurinn öðrum megin, Borgarspítalinn hinum megin. Þar á milli stendur húsið sem eitt sinn hýsti kveðjustundir — með skóginn og tjörnina að baki.

Tjörnin að baki hússins Gæsir á tjörninni Skálinn að innan

Skógurinn

Hádegishlaupið byrjar við dyrnar

Stígarnir í Öskjuhlíð liggja frá bílastæðinu beint inn í skóginn.

Hlaupari á skógarstíg í Öskjuhlíð — teikning
ÖskjuhlíðTeiknað eftir ljósmynd af stígnum

Staðurinn

Nærumhverfi

  • Öskjuhlíðskógarstígar2 mín. ganga
  • Nauthólsvíkylströndum 12 mín. ganga
  • Perlanum 12 mín. ganga
  • Fossvogsdalurhjólastígurum 5 mín. ganga
  • Miðbærinnum 5 mín. akstur
SkógurÖskjuhlíð
YlströndNauthólsvík
Perlaná hæðinni
HjólastígurFossvogsdalur
Miðbærinn5 mín. akstur

Verð

Einfalt verð, ekkert falið

Fast borð í opnu rými

frá 65.000 kr. + vsk.
á borð á mánuði — allt innifalið
  • 65.000 kr. á millipalli, 75.000 kr. á jarðhæð
  • Net, rafmagn, hiti og þrif
  • Fundarherbergi og símaklefar
  • Aðgangur allan sólarhringinn

Einkaskrifstofa

frá 85.000 kr. + vsk.
á mann á mánuði — allt innifalið
  • Fyrir 6–8 manna teymi, með eigin hurð
  • Þín eigin lokaða skrifstofa — og samfélagið handan hurðarinnar
  • Öll sameiginleg aðstaða og þjónusta innifalin

Róleg einkaskrifstofa

frá 70.000 kr. + vsk.
á mann á mánuði — allt innifalið
  • 6 manna, á millipalli með eigin stiga
  • Næði fyrir djúpvinnu í rólegasta hluta hússins
  • Öll sameiginleg aðstaða og þjónusta innifalin

Glerskrifstofur í opna rýminu eru byggðar eftir pöntun. Engin langtímabinding og auðvelt að fjölga borðum.

Í húsinu

— ásamt Vínklúbbnum.

Opnum í nóvember 2026

Borðin eru 44.

Átta stuttar spurningar og þú ert á forgangslistanum — við höfum samband þegar hægt er að festa borð.

Skrá mig á forgangslistann

Spurt og svarað

Hvað er innifalið í verðinu?

Allt: nettenging, rafmagn, hiti, þrif, fundarherbergi, símaklefar, kaffistofa, póstfang og fyrirtækjaskráning — og sódavatnið. Eini aukakostnaðurinn er hádegismaturinn hjá kokkinum, ef þú vilt hann.

Hvernig eru samningarnir?

Sveigjanlegir mánaðarsamningar án langtímabindingar. Borðum má fjölga eða fækka með stuttum fyrirvara.

Hvenær get ég flutt inn?

Húsið verður formlega opnað í nóvember 2026 og mögulega fyrr fyrir þau fyrstu á listanum.

Bíddu — er þetta ekki við kirkjugarð?

Jú. Þar ríkir fullkomin ró og hún smitast yfir til okkar — og útsýnið er grænt allan ársins hring.