Persónuvernd

Hvernig við förum með upplýsingarnar þínar

Kapellan er skrifstofuhús í Vesturhlíð 7, 105 Reykjavík. Þegar þú skráir þig á forgangslistann treystir þú okkur fyrir upplýsingum um þig. Hér má sjá hvernig við förum með þær.

Hverju söfnum við?

Á skráningareyðublaðinu biðjum við um nafn, netfang og – ef þú vilt – nafn fyrirtækis, símanúmer, fjölda borða, tegund rýmis, hvenær þú vilt flytja inn og skilaboð. Við skráum líka tímasetningu skráningar og hvaðan þú komst (t.d. úr auglýsingu). Ef þú skráir þig í gegnum eyðublað hjá Meta (Facebook eða Instagram) berast okkur sömu upplýsingar þaðan.

Í hvaða tilgangi?

Aðeins til að halda utan um forgangslista fyrir skrifborð í Kapellunni og hafa samband við þig varðandi borð, skoðun og opnun. Við sendum ekki fjöldapóst og seljum aldrei eða deilum upplýsingum með þriðja aðila í markaðsskyni.

Hver ber ábyrgð?

Ábyrgðaraðili er Kapellan, Vesturhlíð 7, 105 Reykjavík. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á [email protected].

Ef þú slærð inn nafn og netfang í skráningarformið, vistast þær upplýsingar hjá okkur þótt þú ljúkir ekki skráningunni – það gerir okkur kleift að heyra í þér ef þú kemst ekki alla leið. Þú getur alltaf beðið um að fá þeim eytt með því að senda okkur línu.

Hvar eru upplýsingarnar geymdar?

Skráningar eru geymdar í dulkóðaðri gagnageymslu hjá Cloudflare og tilkynning um hverja skráningu berst okkur í tölvupósti (Missive). Ef þú skráir þig í gegnum Meta gilda skilmálar Meta um eyðublaðið sjálft, en upplýsingarnar berast síðan í sömu geymslu hjá okkur.

Hve lengi?

Við geymum skráninguna á meðan forgangslistinn er virkur og í mesta lagi í tólf mánuði eftir að húsið er opnað. Þá er henni eytt – nema þú gerist leigjandi og upplýsingarnar verði hluti af samningi.

Þinn réttur

Þú getur hvenær sem er beðið um að fá að sjá, leiðrétta eða láta eyða upplýsingunum þínum. Sendu okkur línu á [email protected] og við afgreiðum málið innan viku. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Vefkökur og mælingar

Vefurinn notar Meta Pixel frá Meta (Facebook og Instagram) til að mæla hvort auglýsingar okkar skili skráningum á forgangslistann. Pixillinn vistar vefkökur í vafranum þínum og sendir Meta upplýsingar um heimsóknina í samræmi við persónuverndarstefnu fyrirtækisins. Við notum engar aðrar vefkökur til að rekja ferðir þínar. Þú getur hafnað vefkökum þriðju aðila í stillingum vafrans og breytt auglýsingastillingum á Facebook.

Síðast uppfært 11. september 2026.